Minigarðurinn
Heildarkerfi utan um gestinn: bókanir á golf, pílu og borð, vildarkerfi með þrepum og streaks, verðlaunaveski, herferðir með tilkynningum, Club-áskriftir, take away pantanir og stjórnborð sem starfsfólkið keyrir daginn úr.
W Labs smíðar vildarkerfi, bókanir og gestakerfi fyrir veitinga- og afþreyingarstaði. Eitt kerfi ofan á kassakerfinu sem staðurinn notar nú þegar, svo upplifun gestsins og reksturinn segi sömu sögu.
Fyrsti viðskiptavinurinn er Minigarðurinn í Reykjavík: minigolf, píla, pizza og bar undir sama þaki. Allt hér að neðan keyrir á raunverulegum gögnum staðarins, ekki á sýnidæmi.
Heildarkerfi utan um gestinn: bókanir á golf, pílu og borð, vildarkerfi með þrepum og streaks, verðlaunaveski, herferðir með tilkynningum, Club-áskriftir, take away pantanir og stjórnborð sem starfsfólkið keyrir daginn úr.
Alvöru app fyrir iOS og Android, skrifað í React Native og Expo, ekki vefur í skel. Punktar, þrep, streak og veskið á forsíðunni, bókanir með native dagatali, Club-áskriftin og tilkynningar beint úr herferðavélinni.
Staðir keyra oftast kassakerfi, bókunarkerfi og póstlista sem vita ekkert hver af öðrum. Við tengjum þetta saman svo heimsókn, bókun og verðlaun tilheyri sama gesti.
Allir gestir á einum stað: heimsóknir, eyðsla, þrep og samfelldar vikur, reiknað úr raunverulegum sölugögnum, og persónuupplýsingar dulkóðaðar í geymslu.
Punktar, þrep og verðlaun sem fara beint í veski gestsins, með skilyrðum sem staðurinn setur sjálfur og reglum sem veita aldrei sömu verðlaun tvisvar.
Velja hóp, hengja verðlaun við, skrifa skilaboðin. Senda strax, tímasetja, endurtaka vikulega eða láta áskorun kveikja á þeim. Hljóðlátur tími og vikuþak passa að gestir fái aldrei of mikið.
Bókunarflæði byggt á því hvernig staður virkar í alvöru: brautir, borð og tímabil, combo yfir fleiri en eina afþreyingu, og greiðsla í gegnum kassakerfi staðarins.
Við skiptum ekki út kassakerfinu. Við lesum úr því, svo enginn þurfi að slá neitt inn tvisvar og tölurnar séu aldrei tveir ólíkir sannleikar.
Hver regla er prófuð. Verðlaun eru aldrei veitt tvisvar og heimsókn telur nákvæmlega einu sinni.
Byggt á jaðrinum, á Cloudflare, svo kerfið er nálægt gestinum, ódýrt í rekstri og þarf engan vélasal.
Persónuupplýsingar eru dulkóðaðar, staðurinn er áfram ábyrgðaraðili sinna gestagagna, og enginn fær tilkynningu um miðja nótt.
Allt sem gesturinn sér er á tveimur tungumálum, því helmingurinn sem gengur inn um dyrnar er ferðafólk.
W Labs er hugbúnaðarvörumerki W-invest ehf. í Reykjavík. Við smíðum fyrir stað sem opnar dyrnar alla daga, notum kerfið í daglegum rekstri, og bjóðum það öðrum fyrst eftir það.
Hugbúnaður sem hefur lifað af heila helgi í fullum rekstri er meira virði en hugbúnaður sem hefur bara verið sýndur.
Rekurðu stað og vilt sjá kerfið? Sendu okkur línu og við sýnum þér hvað það gerir, með alvöru tölum úr alvöru rekstri.