Gestagrunnur
Allir gestir á einum stað: heimsóknir, eyðsla, þrep og samfelldar vikur, reiknað úr raunverulegum sölugögnum, og persónuupplýsingar dulkóðaðar í geymslu.
Vildarkerfi, bókanir og gestakerfi fyrir veitinga- og afþreyingarstaði. Eitt kerfi ofan á kassakerfinu sem staðurinn notar nú þegar.
Staðir keyra oftast kassakerfi, bókunarkerfi og póstlista sem vita ekkert hvert af öðru. Við tengjum þau saman, svo heimsókn, bókun og verðlaun tilheyri sama gesti.
Allir gestir á einum stað: heimsóknir, eyðsla, þrep og samfelldar vikur, reiknað úr raunverulegum sölugögnum, og persónuupplýsingar dulkóðaðar í geymslu.
Bókunarflæði byggt á því hvernig staður virkar í alvöru: brautir, borð og tímabil, combo yfir fleiri en eina afþreyingu, og greiðsla í gegnum kassakerfi staðarins.
Punktar, þrep og verðlaun sem fara beint í veski gestsins, með skilyrðum sem staðurinn setur sjálfur og reglum sem veita aldrei sömu verðlaun tvisvar.
Veldu hóp, hengdu verðlaun við og skrifaðu skilaboðin. Sendu strax, tímasettu, endurtaktu vikulega eða láttu áskorun kveikja á þeim. Hljóðlátur tími og vikuþak passa að gestir fái aldrei of mikið.
Fyrsti viðskiptavinurinn er Minigarðurinn í Reykjavík: minigolf, píla, pizza og bar undir sama þaki. Allt keyrir á raunverulegum gögnum staðarins, ekki á sýnidæmi. Samhliða smíðum við okkar eigin vörur.
Heildarkerfi utan um gestinn: bókanir á golf, pílu og borð, vildarkerfi með þrepum og streaks, verðlaunaveski, herferðir með tilkynningum, Club-áskriftir, take away pantanir og stjórnborð sem starfsfólkið keyrir daginn úr.
Alvöru app fyrir iOS og Android, skrifað í React Native og Expo, ekki vefur í skel. Punktar, þrep, streak og veskið á forsíðunni, bókanir með native dagatali, Club-áskriftin og tilkynningar beint úr herferðavélinni.
Okkar eigin vara, á ensku fyrir Bandaríkjamarkað: vinaleg byrjendakennsla í gervigreind, bæði í Claude og ChatGPT, sem raunverulegar skjáupptökur í skrefum. Gerð til að gefa, með gjafakorti sem hægt er að prenta út, fyrir eina greiðslu og ekkert sem endurnýjast.
Við skiptum ekki út kassakerfinu. Við lesum úr því, svo enginn slær neitt inn tvisvar og tölurnar eru aldrei tveir ólíkir sannleikar.
Upplifun gestsins á að vera jafn vönduð og staðurinn sjálfur: í hverjum skilaboðum, hverjum verðlaunum og hverri skjámynd.
Hver regla er prófuð. Verðlaun eru aldrei veitt tvisvar og heimsókn telur nákvæmlega einu sinni.
Persónuupplýsingar eru dulkóðaðar, staðurinn er áfram ábyrgðaraðili sinna gestagagna, enginn fær tilkynningu um miðja nótt og allt sem gesturinn sér er á tveimur tungumálum.
W Labs er hugbúnaðarvörumerki W-invest ehf. í Reykjavík. Við smíðum fyrir stað sem opnar dyrnar alla daga, notum kerfið í daglegum rekstri, og bjóðum það öðrum fyrst eftir það.
Hugbúnaður sem hefur lifað af heila helgi í fullum rekstri er meira virði en hugbúnaður sem hefur bara verið sýndur.
Rekurðu stað og vilt sjá kerfið? Sendu okkur línu og við sýnum þér hvað það gerir, með alvöru tölum úr alvöru rekstri.