W W Labs

Stuðningur

Fyrir gesti og fyrir staði

Sendu okkur línu á hallo@w-labs.app. Við svörum innan eins virks dags.

Ef þú ert gestur

Sé eitthvað að verðlaunum, bókun eða punktunum þínum hjá stað getur staðurinn oftast lagað það á staðnum, svo byrjaðu þar. Sé appið sjálft að hegða sér illa, sendu okkur línu og segðu okkur:

Ekki senda okkur lykilorð, kortanúmer eða kennitölu. Við þurfum þau aldrei til að geta hjálpað þér.

Gögnin þín

Viljirðu sjá, láta leiðrétta eða eyða þeim gögnum sem geymd eru um þig, hafðu samband við staðinn sem þú skráðir þig hjá, eða skrifaðu okkur og við komum erindinu áfram. Persónuverndarstefnan útskýrir hvernig þetta virkar og hver ber ábyrgð á hverju.

Ef þú rekur stað

Rekstrartruflanir, allt sem stöðvar kassann, bókanirnar eða herferð, fara á sama netfang og eru tekin fyrst. Skrifaðu hvað er bilað, hvenær það byrjaði og hvort það bitnar á gestum sem standa fyrir framan þig núna, því það ræður röðinni sem við tökum hlutina í.

Samband

Netfang: hallo@w-labs.app

Póstfang: W-invest ehf., Berjarima 26, 112 Reykjavík. Kennitala 620822-1830.